18.5.08

Pop Quiz 2

Jæja, það virðist enginn ætla að hafa þetta. Þá kemur hér önnur spurning. Við Bjarki fórum í gærkvöldi á aðra tónleika. Þeir voru haldnir hér inni í London, í þúsaldarhvelfingunni eða hvað þeir nú kalla þetta. Þetta er skásta myndin sem ég náði af bandinu sem við fórum að heyra. Og hvert er nú svo bandið?
Þið fáið meira að segja tóndæmi líka.
Þessi er alveg ógeðslega erfið. Ég veit það.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

The bluetones !

Svava & Venni sagði...

VEEIII! Það var lagið!!
Ástrós hefur unnið sér inn Jeppa, Utanlandsferð og 150 tommu flatskjá með sjálfvirkum popp- og kókskammtara!
Þetta var svínsleg spurning og ekki á allra færi að átta sig á þessu, en Ástrós sýndi snilldartakta. Til hamingju Ástrós!!
Nú verðum við víst að fara að henda inn einhverjum fréttum hérna. Allavega er nokkuð ljóst að þessar Popp getraunir virðast ekki eiga upp á pallborðið hjá lesendum síðunnar.